Nú styttist óðum í að gæsaveiði í Ármóti hefjist. Sala veiðileyfa er hafin og þeir allra hörðustu hafa nú
þegar tryggt sér sína daga til skotveiða enda fátt skemmtilegra en að veiða gæs í góðum félagsskap.
Áhugsömum veiðimönnum er bent á að hafa samband á info@hunt.is.
Fengum þessa skemmtilegu mynd frá Róbert Schmidt en hann kom í Ármót um daginn með franska veiðimenn ásamt Dúa Landmark sem
notaði tækifærið og kvikmyndaði ferðina til íslands fyrir franskt sjónvarp.
Í morgun var Dúi Landmark sjónvarpsþáttargerðarmaður ásamt frönskum veiðimönnum að veiðum í Ármóti og ekki
skemmdi fyrir að akrarnir voru svartir af fugli. Búið var að grafa myndatökumenn niður í akrana til að ná sem bestum myndum að skyttunum við
veiðarnar og hættu menn ánægðir með um 30 fugla.
Miðað við magnið sem er núna á svæðinu má gera ráð fyrir góðri veiði næstu daga og líklegir veiðimenn hvattir
til að hafa samband á info@hunt.is
Það var mikið um að vera í Ármóti í síðustu viku, en alls voru 14 veiðimenn hjá okkur, þar af tveir frá
Austurríki. Veðrið var óvenjugott eins og allir hafa fundið fyrir, mikil hlýindi og lítill vindur. Engu að síður var heildarveiðin
tæpir 150 fuglar sem verður að teljast gott miðað við aðstæður.
Það viðrar betur til gæsaveiða þessa vikuna en mjög mikið hefur verið af gæs síðustu tvo daga, ekki hundruð heldur miklu nær
í þúsundum.