Tékklisti fyrir búnað

Til að veiðiferðin heppnist eins vel og kostur er, þá er gott að fara vel fyrir búnaðinn áður en lagt er af stað og nauðsynlegt að hafa eftirfarandi til

Tékklisti fyrir búnað

Til að veiðiferðin heppnist eins vel og kostur er, þá er gott að fara vel fyrir búnaðinn áður en lagt er af stað og nauðsynlegt að hafa eftirfarandi til hliðsjónar:

GÆSAVEIÐI

  • Vatnsvarin úlpa í felulitum
  • Neoprene vöðlur í felulit
  • Góð húfa eða lambhúshetta í felulitum
  • Góðir hanskar í felulit
  • Heyrnahlífar (best að nota þessar sem hleypa umhverfishljóði í gegn en loka fyrir þegar skotið er)
  • Haglabyssa, gauge 12, tvíhleypa eða hálfsjálfvirk með einu skothylki í hlaupi og tveimur í magasýni
  • Haglabyssutaska með vasa fyrir þrengingar og verkfæri
  • Vatnsheld taska fyrir skot
  • Haglaskot fyrir gæs
  • Innanundirfatnaður og sokkar úr ull
RJÚPA

  • Vatns- og vindheld úlpa
  • Vatns- og vindheldar buxur
  • Rjúpnavesti
  • Haglabyssa, gauge 12, létt tvíhleypa eða hálfsjálfvirk með einu skothylki í hlaupi og tveimur í magasýni
  • Haglaskot fyrir rjúpu
  • Húfa í skærum lit
  • Andlitsgríma úr fleece
  • Vind og vatnsheldir hanskar
  • Vatnsheldar legghlífar með stálvír undir skó
  • Innanundirfatnaður og sokkar úr ull (2-3 sett ef veitt í marga daga)
  • Gönguskór
  • Skíðagleraugu (gott að setja upp ef snjóbylur eða skafrenningur skellur á)
  • GPS tæki og aukarafhlöður
  • Höfuðljós og auka rafhlöður

Fréttir


Gæsaveiðin hafin í Ármóti

Þá er gæsaveiðin hafin í Ármóti og óhætt að segja að vertíðin byrji vel, því ekki vantaði gæsina og aflinn eftir því eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Nú fer hver að verða síðastur að bóka veiði svo við bendum áhugasömum á að hafa samband sem fyrst á info@hunt.is



Lesa meira


Nú styttist í gæsaveiðina

Nú styttist óðum í að gæsaveiði í Ármóti hefjist. Sala veiðileyfa er hafin og þeir allra hörðustu hafa nú þegar tryggt sér sína daga til skotveiða enda fátt skemmtilegra en að veiða gæs í góðum félagsskap.

Áhugsömum veiðimönnum er bent á að hafa samband á info@hunt.is.



Frakkar með góðan morgun í Ármóti

Fengum þessa skemmtilegu mynd frá Róbert Schmidt en hann kom í Ármót um daginn  með franska veiðimenn ásamt Dúa Landmark sem notaði tækifærið og kvikmyndaði ferðina til íslands fyrir franskt sjónvarp.



Lesa meira


Sjónvarpsþáttagerðarmenn að gæsaveiðum



Í morgun var Dúi Landmark sjónvarpsþáttargerðarmaður ásamt frönskum veiðimönnum að veiðum í Ármóti og ekki skemmdi fyrir að akrarnir voru svartir af fugli. Búið var að grafa myndatökumenn niður í akrana til að ná sem bestum myndum að skyttunum við veiðarnar og hættu menn ánægðir með um 30 fugla.

Miðað við magnið sem er núna á svæðinu má gera ráð fyrir góðri veiði næstu daga og líklegir veiðimenn hvattir til að hafa samband á info@hunt.is Lesa meira


Síðasta vika í sól og logni

Það var mikið um að vera í Ármóti í síðustu viku, en alls voru 14 veiðimenn hjá okkur, þar af tveir frá Austurríki. Veðrið var óvenjugott eins og allir hafa fundið fyrir, mikil hlýindi og lítill vindur. Engu að síður var heildarveiðin tæpir 150 fuglar sem verður að teljast gott miðað við aðstæður.

Það viðrar betur til gæsaveiða þessa vikuna en mjög mikið hefur verið af gæs síðustu tvo daga, ekki hundruð heldur miklu nær í þúsundum.


Lesa meira

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf