Gćsaveiđi

Gćsaveiđi á 420 hektörum lands. Ármót á Rangárvöllum, ein besta gćsaveiđijörđ landsins, býđur upp á einstakar ađstćđur til gćsaveiđa ţar sem saman fara

Af hverju Ármót

Gæsaveiði á 420 hektörum lands.

Ármót á Rangárvöllum, ein besta gæsaveiðijörð landsins, býður upp á einstakar aðstæður til gæsaveiða þar sem saman fara frábær aðstaða og gríðarlegt magn af gæs. 

Á Ármótajörðinni hefur verið sáð korni víðs vegar um jörðina, í 52 hektara lands. Þegar haustar fara gæsir og aðrir farfuglar að búa sig undir ferðalagið suður á bóginn. Á meðan gæsin býður eftir rétta tímanum til að hefja sig til flugs suður á bóginn, þá flytur hún sig frá öðrum landshlutum til suðurlandsundirlendisins og sækir ekki hvað síst í kornakrana sem þar bíða þreskingar. Flugið suður á bógin er gríðarlega langt, eða tæpir 1.500 km, og gæsin þarf því á orkumiklu korni að halda til að komast alla leið.

Við bjóðum veiðmönnum og veiðfélögum upp á þetta einstaka tækifæri til gæsaveiða við frábærar aðstæður í fallegu umhverfi.


Fréttir


Gćsaveiđin hafin í Ármóti

Þá er gæsaveiðin hafin í Ármóti og óhætt að segja að vertíðin byrji vel, því ekki vantaði gæsina og aflinn eftir því eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Nú fer hver að verða síðastur að bóka veiði svo við bendum áhugasömum á að hafa samband sem fyrst á info@hunt.is



Lesa meira


Nú styttist í gćsaveiđina

Nú styttist óðum í að gæsaveiði í Ármóti hefjist. Sala veiðileyfa er hafin og þeir allra hörðustu hafa nú þegar tryggt sér sína daga til skotveiða enda fátt skemmtilegra en að veiða gæs í góðum félagsskap.

Áhugsömum veiðimönnum er bent á að hafa samband á info@hunt.is.



Frakkar međ góđan morgun í Ármóti

Fengum þessa skemmtilegu mynd frá Róbert Schmidt en hann kom í Ármót um daginn  með franska veiðimenn ásamt Dúa Landmark sem notaði tækifærið og kvikmyndaði ferðina til íslands fyrir franskt sjónvarp.



Lesa meira


Sjónvarpsţáttagerđarmenn ađ gćsaveiđum



Í morgun var Dúi Landmark sjónvarpsþáttargerðarmaður ásamt frönskum veiðimönnum að veiðum í Ármóti og ekki skemmdi fyrir að akrarnir voru svartir af fugli. Búið var að grafa myndatökumenn niður í akrana til að ná sem bestum myndum að skyttunum við veiðarnar og hættu menn ánægðir með um 30 fugla.

Miðað við magnið sem er núna á svæðinu má gera ráð fyrir góðri veiði næstu daga og líklegir veiðimenn hvattir til að hafa samband á info@hunt.is Lesa meira


Síđasta vika í sól og logni

Það var mikið um að vera í Ármóti í síðustu viku, en alls voru 14 veiðimenn hjá okkur, þar af tveir frá Austurríki. Veðrið var óvenjugott eins og allir hafa fundið fyrir, mikil hlýindi og lítill vindur. Engu að síður var heildarveiðin tæpir 150 fuglar sem verður að teljast gott miðað við aðstæður.

Það viðrar betur til gæsaveiða þessa vikuna en mjög mikið hefur verið af gæs síðustu tvo daga, ekki hundruð heldur miklu nær í þúsundum.


Lesa meira

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf