Gæsaveiði

Fyrsta flokks aðstaða Í veiðihúsinu á Ármóti bjóðum við upp á fyrsta flokks gistiaðstöðu fyrir allt að 12 manns. Við leggjum áherslu á vingjarnlegt

Velkominn

Fyrsta flokks aðstaða

Í veiðihúsinu á Ármóti bjóðum við upp á fyrsta flokks gistiaðstöðu fyrir allt að 12 manns.

Við leggjum áherslu á vingjarnlegt andrúmsloft þar sem allt starfsfólk leggur áherslu á að gera ferðina eftirminnilega.
Notaleg gistiaðstaða

Við bjóðum upp á notalega gistiaðstöðu fyrir allt að 12 manns í 6 tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmmum, öðrum húsgögnum og handklæðum.

Tvö rúmmgóð baðherbergi eru í húsinu þar sem hægt er að fara í sturtu og bað, eitt á hvorri hæð. 
Hádegis- og kvöldverður

í lok veiðidags bjóðum við upp á veislumat, hvort sem um er að ræða hádegis- eða kvöldverð. Við reynum eins og hægt er að nota hráefni úr sveitinni, þe.  villibráð af svæðinu, lax úr Þveránni, sjávarfang frá Eyjum og heimaræktuðum kartöflum og grænmeti.
Notaleg setustofa

Á efri hæðinni er notaleg setustofa með glæsilegu útsýni, tilvalin til þess að slaka á að loknum kvöldverði í lok veiðidagsins.

Gott útsýni er til allra átta og helst má nefna Heklu, Eyjafjallajökul og Vestmannaeyjar.
 



Fréttir


Gæsaveiðin hafin í Ármóti

Þá er gæsaveiðin hafin í Ármóti og óhætt að segja að vertíðin byrji vel, því ekki vantaði gæsina og aflinn eftir því eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Nú fer hver að verða síðastur að bóka veiði svo við bendum áhugasömum á að hafa samband sem fyrst á info@hunt.is



Lesa meira


Nú styttist í gæsaveiðina

Nú styttist óðum í að gæsaveiði í Ármóti hefjist. Sala veiðileyfa er hafin og þeir allra hörðustu hafa nú þegar tryggt sér sína daga til skotveiða enda fátt skemmtilegra en að veiða gæs í góðum félagsskap.

Áhugsömum veiðimönnum er bent á að hafa samband á info@hunt.is.



Frakkar með góðan morgun í Ármóti

Fengum þessa skemmtilegu mynd frá Róbert Schmidt en hann kom í Ármót um daginn  með franska veiðimenn ásamt Dúa Landmark sem notaði tækifærið og kvikmyndaði ferðina til íslands fyrir franskt sjónvarp.



Lesa meira


Sjónvarpsþáttagerðarmenn að gæsaveiðum



Í morgun var Dúi Landmark sjónvarpsþáttargerðarmaður ásamt frönskum veiðimönnum að veiðum í Ármóti og ekki skemmdi fyrir að akrarnir voru svartir af fugli. Búið var að grafa myndatökumenn niður í akrana til að ná sem bestum myndum að skyttunum við veiðarnar og hættu menn ánægðir með um 30 fugla.

Miðað við magnið sem er núna á svæðinu má gera ráð fyrir góðri veiði næstu daga og líklegir veiðimenn hvattir til að hafa samband á info@hunt.is Lesa meira


Síðasta vika í sól og logni

Það var mikið um að vera í Ármóti í síðustu viku, en alls voru 14 veiðimenn hjá okkur, þar af tveir frá Austurríki. Veðrið var óvenjugott eins og allir hafa fundið fyrir, mikil hlýindi og lítill vindur. Engu að síður var heildarveiðin tæpir 150 fuglar sem verður að teljast gott miðað við aðstæður.

Það viðrar betur til gæsaveiða þessa vikuna en mjög mikið hefur verið af gæs síðustu tvo daga, ekki hundruð heldur miklu nær í þúsundum.


Lesa meira

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf